Securitas
Securitas
Securitas

Öryggisvörður í farandgæslu

Við leitum að liðsauka til að taka þátt í að viðhalda góðu viðbragði og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar. Viðkomandi aðili mun starfa í farandgæsluteymi Securitas. Lögð er rík áhersla á jákvætt, hugarfar, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.


Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavin Securitas, viðbragð við útköllum vegna boða frá öryggiskerfum, ásamt því að tryggja almennt öryggi og eftirlit með hvers konar öryggisþáttum viðskiptavina okkar.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • býr yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • sýnir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt
  • býr yfir metnaði til að takast á við krefjandi verkefni
  • er stundvís og áreiðanlegur í starfi
  • býr yfir góðri íslenskukunnáttu

Unnið er á vöktum, ýmist dag- eða næturvöktum, viku í senn og frí í viku. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember nk. og skulu umsóknir berast í gegnum www.securitas.is

Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði en samstilltur og góður hópur starfsfólks kappkostar við það að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina.

Auglýsing birt28. október 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skeifan 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar