

Öryggisverðir í hafnarþjónustu
Öryggismiðstöðin leitar eftir einstaklingum í öryggisgæslu á höfninni á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felur í sér að tryggja öryggi og eftirlit á svæðinu ásamt því að sinna daglegum verkefnum á höfninni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega og sé tilbúin/n í fullt starf eða hlutastarf.
Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars útkallsþjónustu, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Um er að ræða starf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað.
Við leitum að einstaklingum til starfa sem geta unnið sjálfstætt en einnig í liði, hafa ástríðu fyrir öryggi og velferð annarra, eru jákvæðir og geta tekið ákvarðanir skjótt og vel.











