Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Öflugur bókari

Ert þú nákvæm, jákvæð og töluglögg manneskja sem elskar að færa bókhald og vilt vinna í öflugu teymi í fallegu og líflegu húsi?

Fjármálasvið Hörpu leitar að öflugum bókara í fullt starf.

Bókari Hörpu vinnur bókhald, afstemmingar og frágang bókhalds fyrir mánaðar-, árshluta og ársuppgjör fyrir félagið og dótturfélög. Bókari hefur hlutverk „super user“ á bókhaldskerfi félagins, í því felst meðal annars að úthluta aðgangsheimildum í kerfið, tileinka sér framúrskarandi hæfni í kerfinu og geta leiðbeint öðrum notendum.

Um er að ræða fjölbreytt ábyrgðarstarf fyrir einstakling sem er mjög nákvæmur, lipur í mannlegum samskiptum, tilbúinn að tileinka sér nýjungar og hefur metnað til að ná góðum árangri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Færsla á bókhaldi; fjárhags-, verk- og lánadrottna- og viðskiptamannabókhald
  • Útgáfa sölureikninga
  • Uppgjör og afstemmingar miðasölu að loknum viðburðum og uppfærsla sölugagna
  • Frágangur gagna fyrir mánaðar-, árshluta- og ársuppgjör
  • Afstemmingar og skil á gögnum til endurskoðenda
  • Úrvinnsla tölulegra upplýsingar og upplýsingagjöf
  • Þátttaka í umbótaverkefnum á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi, háskólapróf er kostur 
  • Lágmark 4 ára starfsreynsla sem nýtist í starfið
  • Þekking og reynsla af Microsoft Dynamics 365 Business Central  bókhaldskerfinu
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta og mikil færni í Excel 
  • Reynsla af umbóta- og teymisvinnu er kostur 
  • Mjög gott vald á íslensku og gott vald á ensku 
  • Nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð 
Fríðindi í starfi

Samgöngusamningur eða bílastæði, gott mötuneyti, símastyrkur, íþróttastyrkur og frábært starfsmannafélag 

Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar