Snæland Grímsson
Snæland Grímsson

Aðalbókari

Snæland Grímsson óskar eftir að ráða öflugan aðalbókara til starfa. Viðkomandi mun bera ábyrgð á daglegum bókhaldsverkefnum, afstemmingum og skýrslugerð í samræmi við lög og reglur. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með fjárhags-, launa og viðskiptabókhaldi
  • Yfirumsjón með afstemmingum, árshlutauppgjörum og viðskiptayfirlitum
  • Ábyrgð á VSK uppgjörum
  • Upplýsingagjöf og skýrslugerð til stjórnenda og starfsmanna
  • Önnur tengd verkefni í samráði við fjármálastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Próf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • 3 ára reynsla af bókhaldi, þekking á fjármálaumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja er kostur
  • Reynsla af launaútreikningum og VSK skilum
  • Þekking á Dynamics 365 Business Central
  • Framúrskarandi Excel kunnátta
  • Greiningarhæfni og nákvæmni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og góð samskiptahæfni

Um Snæland Grímsson:

Snæland Grímsson ehf. er rótgróið fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu. Fyrirtækið var stofnað af Snæland Grímssyni og fjölskyldu hans árið 1945. Fyrirtækið hefur alla tíð síðan lagt áherslu á persónulega þjónustu sem byggð er á áratuga reynslu og þekkingu á íslenskri ferðaþjónustu.

Skrifstofur fyrirtækisins eru í nýlegu björtu húsnæði að Hádegismóum þar sem boðið upp á fjölskylduvænt vinnuumhverfi og vinnutíma.

Umsóknarfrestur er til og með15. apríl 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hádegismóar 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.ViðskiptafræðingurPathCreated with Sketch.Viðurkenndur bókari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar