

Aðalbókari - tímabundið starf
Aðalbókari – tímabundið starf
(english below)
Linde Gas ehf. óskar eftir metnaðarfullum aðalbókara til starfa á skrifstofu sinni í Hafnarfirði í afleysingu í 6-8 mánuði vegna fæðingarorlofs. Starfshlutfall getur verið 60%-100%. Í boði er spennandi starf hjá alþjóðlegu fyrirtæki, sem er enn í vexti eftir 100 ára starfsemi á Íslandi. Aðalbókari ber faglega ábyrgð á sínum verkefnum og starfar náið með fjármálastjóra. Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Ábyrgð á reikningshaldi félagsins, afstemmingu efnahagsreikninga, virðisaukaskattsuppgjörum og mánaðarlegum skattaútreikningum
Bókanir á nauðsynlegum lokafærslum í mánaðar- og ársuppgjöri
Ábyrgð á bókunum, greiðslu og afstemmingu lánadrottna
Samskipti við endurskoðendur og skattayfirvöld
Afleysing fjármálastjóra
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar – og hæfniskröfur:
Háskólapróf á sviði reikningshalds, endurskoðunar eða önnur sambærileg menntun
Góð þekking og reynsla á reikningsskilum og skattareglum
Góð þekking á SAP og Excel er kostur
Góð skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti, en talsverður hluti samskipta fer fram á ensku.
Linde Gas ehf. er hluti af The Linde plc., sem er leiðandi gasfyrirtæki með yfir 65.000 starfsmenn og er stærsti framleiðandi á gasi í heiminum. Linde vinnur með lyfja- og líftæknifyrirtækjum, í járn- og stáliðnaði sem og í matvælaiðnaði og heilsugeiranum. Öll okkar framleiðsla fyrir iðnað krefst mikilla gæða. Hjá Linde á Íslandi starfa 35 manns og er skrifstofan staðsett í Hafnarfirði.
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2026 en umsóknir verða skoðaðar jafnóðum og þær berast.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (á ensku eða íslensku) þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Kjartansdóttir, fjármálastjóri ([email protected]) í síma 615-9112.
Chief Accountant – Temporary Position
Linde Gas ehf. is seeking an ambitious Chief Accountant to join its office in Hafnarfjörður for a 6-month parent leave cover position. The position can be 60% to 100%. This is an exciting opportunity to work for an international company that continues to grow after more than 100 years of operations in Iceland. The Chief Accountant will have professional responsibility for their area of work and will collaborate closely with the Finance Manager. The successful candidate should ideally be available to start as soon as possible.
Key Responsibilities
- Responsibility for the company's accounting, balance sheet reconciliations, VAT returns, and monthly tax calculations.
- Posting necessary closing entries during monthly and annual financial closing processes.
- Responsibility for accounts payable postings, payments, and reconciliations.
- Communication with auditors and tax authorities.
- Acting as a substitute for the Finance Manager when required.
- Other related duties as assigned.
Education and Qualifications
- University degree in accounting, auditing, finance, or equivalent education.
- Strong knowledge and experience in financial reporting and tax regulations.
- Experience with SAP and Excel is an advantage.
- Strong organizational skills and good interpersonal abilities.
- Fluent in Icelandic and English, both written and spoken, as a significant portion of communication takes place in English.
Linde Gas ehf. is part of Linde plc, a leading global industrial gases company with more than 65,000 employees and the world's largest producer of industrial gases. Linde serves pharmaceutical and biotechnology companies, the iron and steel industry, as well as the food and healthcare sectors. High quality standards are essential across all our industrial production processes. Linde Iceland employs 35 people, and its office is located in Hafnarfjörður.
The application deadline is 4 December 2026. Applications will be reviewed continuously as they are received.
Applications should include a CV and a cover letter (in either English or Icelandic) outlining the applicant's qualifications and relevant experience for the role.
All inquiries and applications will be treated confidentially and responded to once the recruitment process has been completed.
For more information, please contact: Brynhildur Kjartansdóttir Finance Manager ([email protected]) in tel: 615 9112
Íslenska
Enska