Neskirkja
Neskirkja
Neskirkja

Neskirkja leitar að organista í fullt starf

Neskirkja auglýsir laust til umsóknar starf organista. Um er að ræða 100% stöðu. Við Neskirkju starfar öflugur kór, safnaðarstarf er fjölbreytt og messað er hvern helgan dag.

Hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða háskólamenntun í kirkjutónlist og hafi reynslu og þekkingu á kórstjórn. Menntun á sviði kórstjórnar er kostur.

  • Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hefur vilja til að starfa af metnaði með prestum, starfsfólki og sjálfboðaliðum með það að marki að efla og styrkja tónlistarstarf Neskirkju.

  • Nánari starfslýsing mun fylgja starfssamningi.

Helstu starfsskyldur organista:

  • Ber ábyrgð á tónlistarstarfi kirkjunnar.

  • Leikur undir í helgihaldi, athöfnum og öðru safnaðarstarfi.

  • Stjórnar Kór Neskirkju og starfar með stjórn kórsins.

  • Hefur umsjón með hljóðfærum kirkjunnar og styður við safnaðarstarf í samstarfi við presta, sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar.

Launakjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO.

Umsóknarfrestur um starfið er til 27. apríl nk. Starfið veitist frá 1. ágúst nk.

Með umsóknum skulu fylgja afrit af prófskírteinum og ferilskrá og samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veita Rúnar Reynisson rekstrarstjóri í s. 863 2322, runar@neskirkja og sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur, í síma 846-6714, [email protected].

Umsóknum skal skilað rafrænt á [email protected] einnig má skila umsóknum beint í Neskirkju við Hagatorg, 107 Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu starfsskyldur organista:

  • Ber ábyrgð á tónlistarstarfi kirkjunnar.

  • Leikur undir í helgihaldi, athöfnum og öðru safnaðarstarfi.

  • Stjórnar Kór Neskirkju og starfar með stjórn kórsins.

  • Hefur umsjón með hljóðfærum kirkjunnar og styður við safnaðarstarf í samstarfi við presta, sóknarnefnd og starfsfólk kirkjunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um að umsækjandi hafi lokið kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða háskólamenntun í kirkjutónlist og hafi reynslu og þekkingu á kórstjórn. Menntun á sviði kórstjórnar er kostur. 

Fríðindi í starfi

Launakjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra organista FÍO.

Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur27. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Neskirkja, Hagatorgi, 107 Reykjavíl
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar