Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær

Aðstoðarskólastjóri við Tónlistarskóla Stykkishólms

Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskóla Stykkishólms Staðan skiptist á milli stjórnunarstarfa og kennslu. Skólinn er samrekinn með grunnskólanum. Staðan er 100% starf og felur í sér bæði stjórnun (50%) og kennslu (50%). Hlutfall stjórnunar og kennslu getur verið sveigjanlegt og tekið mið af hæfni og reynslu þess sem ráðinn verður, sem og þörfum skólans.

Tónlistarskólinn í Stykkishólmi er samrekinn með Grunnskóla Stykkishólms og gegnir mikilvægu hlutverki í menningar- og skólastarfi bæjarins.

Í skólanum starfar metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á fagmennsku, samstarf og skapandi tónlistarstarf. Tónlistarskólinn sinnir fjölbreyttu, öflugu og mikilvægu starfi fyrir sveitarfélagið. Um 110 nemendur á öllum aldri stunda þar tónlistarnám.

Starfið felur í sér fjölbreytt og skapandi verkefni í öflugu skólasamfélagi þar sem rík áhersla er lögð á samstarf, fagmennsku og jákvæðan starfsanda. Starfið veitir góð tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar.

Ráðið er í stöðuna frá 01. ágúst 2026

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Umsókninni skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri grunn- og tónlistarskóla.
[email protected] / 433-8178

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfred.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Skólinn áskilur sér rét til að framlengja umsóknarfrest.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun tónlistarskólans í samvinnu við skólastjóra
  • Skipulag kennslu og viðburða
  • Samskipti við nemendur, foreldra og starfsfólk
  • Þátttaka í stefnumótun og þróunarstarfi skólans
  • Upplýsingagjöf
  • Kennsla (t.d. gítar, tónmennt, tónfræði, söngur, kórstjórn)
  • Fagleg forysta og starfsmannahald
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarmenntun á háskólastigi
  • Kennsluréttindi eða sambærileg menntun æskileg
  • Reynsla af tónlistarkennslu
  • Reynsla af stjórnun eða faglegri forystu æskileg
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og góð samskiptahæfni
  • Áhugi á þróun tónlistarnáms og skapandi skólastarfi
  • Þekking á skólastarfi
  • Góð tölvukunnátta, tæknilæsi og innsýn í samfélagsmiðla
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur22. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólastígur 11, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar