Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Myndmenntakennari í Seljaskóla

Laus er til umsóknar 100% staða myndmenntakennara í Seljaskóla.

Seljaskóli við Kleifarsel er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk í efri hluta Seljahverfis. Þar sækja rúmlega 670 nemendur skóla og við hann starfa um 100 starfsmenn. Starfið byggir á grunngildum skólans, samvinnu- ábyrgð- trausti – og tillitssemi og er skólastarf sem stuðlar að vellíðan nemenda og starfsmanna (SÁTT). Sérstök áhersla er lögð á félagsfærni og sjálfseflingu í anda Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast.

Allt starf Seljaskóla byggir á teymisvinnu og vinnur kennarateymi saman að kennslu árgangs, þróun skólastarfs og samvinnu við foreldra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og annast myndmenntakennslu.
  •  Annast kennslu nemenda samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla í samráði við skólastjórnendur og teymi list- og verkgreinakennara.
  • Heldur utan um myndmenntastofu skólans, vélar, verkfæri og innkaup. 
  • Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Menntun og hæfni til að kenna myndmennt.
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg sérstaklega í myndmennt eða öðrum list- og verkgreinum. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni og áhugi á að vinna með öðrum.
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum og samstarfi
  • Heiðarleiki og stundvísi Góð kunnátta í íslensku skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað, a.m.k. C1 samkvæmt Samevrópska matsrammanum. Faglegur metnaður og sveigjanleiki í starfi. Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

 

Fríðindi í starfi

Reykjavíkurkort (sundkort og menningarkort í einu korti)

Samgöngustyrkur

Heilsuræktarstyrkur

 

Auglýsing birt8. apríl 2025
Umsóknarfrestur22. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kleifarseli 28
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar