Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Móttökuritari-Upplýsingamiðstöð HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir móttökuritara til starfa við nýstofnaða upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs. Símsvörun og netspjallið er opið alla daga frá kl. 8 til 22 og er því um breytilegan vinnutíma að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geta hafið störf 1. febrúar eða eftir nánara samkomulagi.

Upplýsingamiðstöð HH hefur tvíþætt hlutverk:

Að þjónusta þau sem þangað leita hvort sem er í síma eða netspjalli á heilsuvera.is, þannig að málin séu leyst eða komið í viðeigandi farveg. Öllum erindum er sinnt hvaðan úr heiminum sem þau koma.

Skrifa, viðhalda og þróa þekkingarvef heilsuveru sem kemur á framfæri til almennings áreiðanlegri þekkingu um þroska, heilsu, áhrifaþætti heilbrigðis, sjúkdóma, frávik og einkenni.

Menntunar- og hæfniskröfur
Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
Reynsla af móttökuritarastarfi kostur
Reynsla af Sögukerfi kostur
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta
Góð færni í ritaðri og talaðri ensku og íslensku
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun
Almenn upplýsingagjöf í síma og á netspjalli
Vinna við uppfærslu og gæðamál á heilsuvera.is
Önnur tilfallandi störf á upplýsingamiðstöð HH
Auglýsing birt10. janúar 2022
Umsóknarfrestur24. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar