
Intellecta
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði. Ráðningarsvið Intellecta sinnir ráðningum stjórnenda og sérfræðinga bæði fyrir opinberar stofnanir og einkamarkaðinn. Þá sinnir sviðið einnig mannauðsráðgjöf og ráðgjöf til einstaklinga í atvinnuleit.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.

Móttöku- og skrifstofustarf
Öflugt og vaxandi fyrirtæki sem starfar á alþjóðamarkaði óskar eftir að ráða kraftmikla manneskju til starfa á skrifstofu sinni í Reykjavík. Viðkomandi mun hafa það meginhlutverk að sinna móttöku skrifstofunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn símsvörun og tölvupóstsamskipti
- Móttaka gesta
- Umsjón með fundarherbergjum
- Aðstoð við launavinnslu
- Samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Þekking eða reynsla af launavinnslu er kostur
- Þekking á H3 eða sambærileg kerfi eru kostur
- Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur2. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Launafulltrúi sem langar í meira
Brú Talent ehf.

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu