

Metnaðarfullur móttökusnillingur!
Ert þú metnaðarfullur og drífandi dugnaðarforkur?
Í boði er starf í móttöku Hreyfingar / Hreyfing spa.
Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi sölu og þjónustu hæfileikum. Vera góður í mannlegum samskiptum, metnaðarfullur og drífandi.
Um er að ræða vaktavinnu á virkum dögum og um helgar.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hreyfing er metnaðarfullur og líflegur vinnustaður og við leitum að öflugu fólki sem býr yfir eftirfarandi eiginleikum:
Hefur leiðtogahæfileika
Er sölu- og árangursdrifinn
Þykir gaman að umgangast fólk og veita framúrskarandi þjónustu með bros á vör
Horfir jákvætt á hlutina og er lausnamiðaður
Hefur metnað til að vera framúrskarandi
Er stundvís, traustur, ábyrgur og áreiðanlegur starfsmaður
Reykleysi er skilyrði. Um framtíðarstarf er að ræða í vaktavinnu.
Lágmarksaldur umsækjenda er 18 ár.











