Alvotech hf
Alvotech hf
Alvotech hf

Matreiðslumeistari Alvotech Bistro

Viltu móta framtíðina með okkur?

Líf og starf okkar hjá Alvotech gengur út á að bæta lífsgæði fólks. Við leggjum ríka áherslu á vellíðan okkar starfsfólks og holl og góð næring leikur lykilhlutverk í þeirri vegferð. Nú leitum við að öflugum matreiðslumeistara til að leiða Alvotech Bistro.

Við erum ört vaxandi fyrirtæki með aðsetur að Sæmundargötu 15-19 í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Við erum með frábært eldhús og mötuneyti í fallegu rými á efstu hæð höfuðstöðvanna. Starfsmönnum fyrirtækisins fjölgar ört, en daglega snæða að jafnaði um 350 manns í mötuneytinu.

Vinna er hafin við stækkun á húsnæði fyrirtækisins í Vatnsmýri. Það mun fela í sér breytingar á skipulagi eldhúss og mötuneytis sem gefur nýjum aðila frábært tækifæri að þróa framtíðaraðstöðu fyrir eldhúsið og mötuneytið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði matreiðslu nauðsynleg
Reynsla af rekstri mötuneytis í stóru fyrirtæki, á hóteli eða reynsla í sambærilegu starfi.
Reynsla af mannaforráðum.
Ástríða fyrir fjölbreyttri matargerð, vegan- og grænmetisréttum þar með talið.
Rekstrarreynsla og rík kostnaðarvitund.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Metnaður og sjálfstæð vinnubrögð og áhugi á að taka þátt í breytingum og uppbyggingu.
Góð enskukunnátta er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að leiða teymi metnaðarfullra starfsmanna í að matreiða hollan og fjölbreyttan mat.
Ábyrgð á daglegum rekstri mötuneytis þ.m.t. samninga við birgja og nýting á hráefni.
Ábyrgð á vinnuskipulagi, verkaskiptingu og vaktafyrirkomulagi.
Ástríða fyrir að hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi, draga úr matarsóun og minnka kolefnisfótspor.
Taka þátt í að þróa og hanna Alvotech Bistro og Alvotech Café til framtíðar og tryggja jákvæða og góða upplifun starfsmanna.
Auglýsing birt5. október 2021
Umsóknarfrestur14. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sæmundargata 15-19 15R, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar