

Matreiðslumaður óskast í Kársnesskóla
Laus er til umsóknar staða matreiðslumanns í nemendamötuneyti Kársnesskóla
Í Kársnesskóli eru um 400 nemendur í 5. - 10. bekk og 60 starfsmenn. Í skólanum ríkir góður andi og starfsumhverfi er gott. Áhersla er lögð á að elda hollan, fjölbreyttan og góðan mat fyrir nemendur og starfsfólk.
Kársnesskóli er fisk- og hnetulaus skóli.
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum matreiðslumanni sem hefur áhuga á að skapa bragðgóðan og næringarríkan mat fyrir nemendur og starfsfólk.
Í mötuneyti skólans starfa tveir matráðar ásamt matreiðslumanni sem leiðir hópinn og sér um verkstjórn. Helstu verkefni er að sjá um eldamennsku hafragrauts að morgni og hádegisverðar þar sem þarf að huga að valkostum fyrir grænkera og sérfæði vegna ofnæmis og/eða sjúkdóma.
Ráðningartími og starfshlutfall
Um er að ræða 100% framtíðarstarf
- Ábyrgð á daglegum rekstri eldhúss
- Gerð matseðla skv. lýðheilsumarkmiðum
- Ábyrgð á samskiptum við birgja varðandi pantanir/innkaup
- Samþykkt reikninga
- Ábyrgð á umgengi og hreinlæti í eldhúsi
- Vinna gegn matarsóun
- Huga að góðu mataræði og matarvenjum barna
- Önnur skyld verkefni frá yfirmanni
- Meistaranám í matvælagreinum eða matartækninám
- Reynsla af starfi í stóreldhúsi æskileg
- Hæfni og geta til að sjá um mötuneyti fyrir 500 manns
- Áhugi á fjölbreyttri og hollri matargerð
- Skipulagni, frumkvæði og metnaður við störf
- Áhugi á að starfa með börnum og unglingum
- Þolinmæði, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Stundvísi og áreiðanleiki
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Íslenska










