

Matreiðslumaður í mötuneyti Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingi með ástríðu fyrir matargerð til að starfa í ný standsettu mötuneyti sveitarfélagsins sem staðsett verður í nýrri byggingu íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins í Árnesi.
Viðkomandi þarf að vera skapandi i hugsun og ófeimin að koma með nýjar hugmyndir, barngóður og jákvæður.
Í mötuneyti sveitarfélagsins verður framleiddur matur fyrir nemendur leik- og grunnskóla og starfsfólk sveitarfélagsins. Áætlaðir matarskammtar á dag eru um 200 talsins skólaárið 2026-2027.
Sveitarfélagið vill leggja áherslu á að framreitt sé heilsusamlegt mataræði sem samanstendur af næringaríkum mat frá náttúrunnar hendi. Í sveitarfélaginu og nærumhverfi þess eru margir frumframleiðendur og matarkista af fjölbreyttu hráefni til hollrar matargerðar.
- Umsjón, undirbúningur og framleiðsla fjölbreyttra máltíða fyrir nemendur leik- og grunnskóla og starfsfólk sveitarfélagsins.
- Daglegur rekstur mötuneytisins.
- Þróun matseðla.
- Að undirbúa mat til flutnings í móttökueldhús.
- Innkaup og móttaka matvæla.
- Skipulagning á eldhúsi, kælum og matvælageymslum.
- Að halda eldhúsi, kælum og matvælageymslum snyrtilegum og vel skipulögðum allt í samræmi við matvælaöryggis-, hreinlætis- og sóttvarnastöðlum.
- Flokkun og skráning úrgangs frá mötuneyti.
- Stuðla að minni matarsóun.
- Stuðla að heilsueflandi samfélagi í samstarfi við stjórnendur sveitarfélagsins.
- Sveinsbréf í matreiðslu
- Þekking á næringarfræði og áhugi á heilsusamlegri matargerð.
- Þekking á HACCP gæðakerfi.
- Þekking á hreinlætis- og sóttvarnastöðlum.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni og góð þjónustulund
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og vinnugleði
- Stundvísi, snyrtimennska og reglusemi
Íslenska










