
Markaðsstjóri – Jónsbók
Byggðu upp vörumerki Jónsbókar á Norðurlöndum og í Mið- og Austur-Evrópu.
Jónsbók er gervigreindarlausn fyrir lögfræðinga og félagið starfar nú þegar á Íslandi, í Finnlandi, Noregi, Ungverjalandi, Króatíu, Póllandi og Rúmeníu. Við leitum að markaðsstjóra sem tekur fulla ábyrgð á markaðsmálum fyrirtækisins, allt frá samfélagsmiðlaauglýsingum til vörumerkjauppbyggingar og viðburða í fjölda landa. Þú vinnur náið með stofnendum og söluteymi og hefur mikið sjálfstæði til að móta eigin verkefni.
Starfið hentar vel fyrir reyndan aðila í markaðsmálum, sem tekur mikið frumkvæði og hefur áhuga á taka þátt í uppbyggingu nýs vörumerkis á alþjóðlegum vettvangi.
- Hanna og keyra samfélagsmiðlaauglýsingar og herferðir á mörkuðum Jónsbókar.
- Byggja upp vörumerki Jónsbókar og tryggja samræmda ásýnd á öllum mörkuðum.
- Skipuleggja og halda utan um viðburði, ráðstefnur og kynningar í fjölda landa.
- Móta markaðsstefnu í samstarfi við sölu- og vöruteymi.
- Fylgjast með árangri herferða og aðlaga þær út frá gögnum.
- Byggja upp tengsl við miðla, samstarfsaðila og viðburðaraðila á hverjum markaði.
Þú gætir hentað ef þú
- Hefur háskólamenntun í tengdu fagi svo sem markaðsfræði, viðskiptafræði, samskiptum eða sambærilega reynslu.
- Hefur reynslu af samfélagsmiðlaauglýsingum og stafrænni markaðssetningu.
- Hefur reynslu af vörumerkjauppbyggingu (brand building).
- Hefur skipulagt og haldið utan um viðburði, gjarnan í fleiri en einu landi.
- Vinnur sjálfstætt, tekur frumkvæði og þrífst í hröðu og breytilegu umhverfi.
- Hefur gott vald á íslensku og ensku
Kostir
- Reynsla af markaðssetningu í B2B hugbúnaði (SaaS) eða tæknifyrirtæki.
- Reynsla af markaðsstarfi á Norðurlöndum eða í Mið- og Austur-Evrópu.
- Þekking á markaðssetningu gagnvart lögfræðingum eða öðrum sérfræðistéttum.
- Kunnátta í öðru norrænu máli eða tungumáli CEE-svæðisins er kostur.
Við bjóðum upp á mikið sjálfstæði og bein áhrif á vöxt fyrirtækisins, hratt og lifandi sprotaumhverfi með alþjóðlegum verkefnum frá fyrsta degi og tækifæri til að byggja upp markaðsteymi.
Íslenska
Enska



