Nói Síríus
Nói Síríus
Nói Síríus

Markaðsstjóri hjá Nóa Síríus

Vilt þú starfa með sætustu vörumerkjum landsins?

Vegna vaxandi umsvifa leitar Nói Síríus að drífandi og reynslumiklum markaðsstjóra í markaðsteymi fyrirtækisins. Ásamt eigin vörumerkjum er Nói Síríus með sterk alþjóðleg vörumerki eins og Pringles, Kelloggs, Bubs, Smash! og Panda. Við bjóðum uppá spennandi og skemmtilegt starf í alþjóðlegu umhverfi. Hjá Nóa Síríus færð þú tækifæri til að þróast faglega og byggja upp okkar þekktu vörumerki, á sama tíma og að skapa gleði og bragðupplifanir fyrir okkar neytendur.

Sem markaðsstjóri færðu einstakt tækifæri til að leiða markaðssetningu fyrir nokkur af vinsælustu vörumerkjum okkar. Þú verður lykilaðili í kraftmiklu teymi, vinnur náið með hæfileikaríkum samstarfsmönnum og stuðlar að arðbærum vexti og nýsköpun í vöruflokknum. Ef þú hefur ástríðu fyrir markaðssetningu og reynslu af að þróa og framkvæma markaðsáætlanir, þá viljum við heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þóun og framkvæmd markaðsáætlana til að auka sýnileika og sölu
  • Umsjón með markaðsherferðum á öllum miðlum, bæði stafrænum og hefðbundnum
  • Greining á markaðsgögnum og þróun á innsýn til að bæta árangur
  • Samvinna við söluteymi til að tryggja samræmi í markaðsstefnu
  • Samskipti við samstarfsaðila
  • Umsjón með vörumerkjum og tryggja samræmi í öllum markaðsefnum
  • Vinna með alþjóðlegu markaðsteymi Orkla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfið og/eða að lágmarki 3-5 ára reynsla í sambærilegu starfi
  • Árangursrík reynsla af stefnumótun og stjórnun markaðsmála
  • Framúrskarandi hæfni í að þróa og framkvæma markaðsáætlanir
  • Sterk leiðtogahæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Reynsla í FMCG (neytendavörum) eða tengdri atvinnugrein er kostur
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna undir álagi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Þekking á nýjustu markaðsstraumum og tækni
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
  • Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
  • Virkt starfsmannafélag
  • Golfklúbbur
  • Píluklúbbur
  • Afsláttur af vörum fyrirtækisins
Auglýsing birt29. október 2024
Umsóknarfrestur11. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar