Verkefnastjóri
Ert þú hæfileikaríkur verkefnastjóri með brennandi áhuga á stafrænni markaðssetningu? Þá erum við að leita að þér! Sahara leitar að skipulögðum einstaklingi til að slást í hóp starfsmanna sem vinna að fjölbreyttum verkefnum. Í boði eru spennandi verkefni í vaxandi fyrirtæki.
Rétti aðilinn býr yfir getu til að halda mörgum boltum á lofti, hefur sjálfstæða hugsun, hröð og sjálfstæð vinnubrögð, og getur sýnt frumkvæði í starfi.
-
Stýring og ábyrgð á viðskiptasamböndum
-
Þjónusta, ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini
-
Uppsetning á verkáætlunum, tímalínum og fjárhagsáætlunum fyrir viðskiptavini
-
Skipulag, umsjón og eftirfylgni verkefna
-
Stýra verkefnafundum og tryggja gott upplýsingaflæði
-
Uppsetning á birtingaráætlunum fyrir innlendan markað
-
Bókun á innlendum birtingum
-
Skýrslugerðir og uppsetning á kynningum
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
2+ ára reynsla sem verkefnastjóri eða viðskiptatengill
-
Reynsla af sambærilegu starfi nauðsynleg
-
Góð þekking af verkefnastjórnunarkerfum eins og Asana
-
Góð þekking og reynsla af innlendum birtingamálum
-
Haldbær þekking á stafrænni markaðssetningu
-
Mjög góð samskiptahæfni og þjónustulund
-
Metnaður, drifkraftur og frumkvæði
-
Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
-
Góð vinnuaðstaða
-
Matarstyrkur
-
Farsímaáskrift
-
Öflugt starfsmannafélag og frábær vinnustaðamenning
-
Frábærir vinnufélagar