Reykjavik Geothermal
Reykjavik Geothermal

Markaðs og samskiptastjóri

Spennandi tækifæri í ört vaxandi grænu orkufyrirtæki.

Reykjavík Geothermal er eitt metnaðarfyllsta orkufyrirtæki landsins. Frá stofnun þess árið 2008 hefur félagið unnið að þróunar-, fjárfestinga- og ráðgjafaverkefnum á sviði jarðhita í yfir 50 þjóðlöndum í flestum heimsálfum. Í dag er fyrirtækið í örum vexti og er meðal annars að þróa eigin verkefni á Kanaríeyjum og á Mið-Austurlöndum, auk verkefni okkar í Ölfusi sem er eitt stærsta orkuverkefni landsins.

Við leitum að markaðs- og samskiptastjóra með sterka heildarsýn, frumkvæði og faglega nálgun. Starfið felur í sér stefnumótun og innleiðingu hennar ásamt því að tryggja samræmd, trúverðug og áhrifarík skilaboð til helstu hagaðila, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Mótun og framkvæmd heildstæðrar markaðs- og samskiptastefnu fyrir RG
  • Ráðgjöf og stuðningur við forstjóra í samskiptum við fjölmiðla, fjárfesta og aðra lykilhagaðila
  • Umsjón með samskiptum við fjölmiðla, hönnunar- og birtingarstofur
  • Samskiptum við nærsamfélög á verkefnasvæðum RG
  • Samræming efnisgerðar, þar á meðal kynningarefnis, fréttamiðlunar, vefsíðu og samfélagsmiðla
  • Þróun og viðhald á ímynd, orðspori og vörumerki Reykjavík Geothermal


Leitum að einstaklingum sem hafa:

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og eiga auðvelt með að setja flókin mál í skýrt og aðgengilegt samhengi
  • Sterka tilfinningu fyrir ímynd, orðspori og samfélagslegri ábyrgð
  • Tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð og sýna frumkvæði
  • Ástríðu fyrir orku-, umhverfis- og loftslagmálum
  • Metnað til að taka þátt í uppbyggingu leiðandi græns orkufyrirtækis
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu af markaðs- og samskiptastörfum
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta (t.a.m. spænska) eru kostur


Aðalstarfsstöð er í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, en verkefnin munu að hluta vinnast á starfsstöðvum erlendis.


Umsóknarfrestur er til og með 4. mars nk.


Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur4. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar