![Tónlistarmiðstöð](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-2ac3b087-e0ab-485b-9190-e54002e48186.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Tónlistarmiðstöð](https://alfredprod.imgix.net/adcover/is-41201c98-2b95-4316-b410-ba4e0bce75a7.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar
Tónlistarmiðstöð leitar að öflugum einstaklingi til að sinna starfi markaðs- og kynningarstjóra. Í starfinu felst umsjón og eftirfylgni með markaðs- og kynningarmálum miðstöðvarinnar, samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla, samskipti við nánustu samstarfsaðila Tónlistarmiðstöðvar á sviði markaðs- og kynningarmála og yfirumsjón með miðlum Tónlistarmiðstöðvar og ýmis konar efnisgerð. Við leitum að skapandi og drífandi liðsfélaga sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september. Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst.
-
Umsjón með markaðs- og kynningarmálum miðstöðvarinnar
-
Náið samstarf við framkvæmdastjóra og sérfræðinga miðstöðvarinnar um mótun samskiptastefnu Tónlistarmiðstöðvar, gerð kynningar- og markaðsáætlana, miðlun verkefna og viðburða og gerð kynningar- og markaðsáætlana
-
Samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla og gerð fréttatilkynninga
-
Samskipti við Íslandsstofu og aðra lykilsamstarfsaðila er varða markaðs- og kynningarmál
-
Umsjón með vef, fréttabréfi og samfélagsmiðlum Tónlistarmiðstöðvar
-
Umsjón með framleiðslu á kynningarefni og efnisgerð
-
Umsjón með umfjöllunarvakt og skýrslugerð er varðar markaðs- og kynningarmál
-
Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
-
Haldbær reynsla af kynningar- og markaðsstörfum
-
Áhugi á íslenskri tónlist og þekking á umhverfi tónlistar er kostur
-
Reynsla af verkefnastjórnun
-
Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta
-
Færni til að tjá sig í ræðu og riti, setja fram og miðla upplýsingum og koma fram og halda kynningar á íslensku og ensku
-
Góð tölvu- og tæknikunnátta og þekking á notkun samfélagsmiðla í kynningarstarfi
-
Rík samskiptahæfni og færni til að vinna í teymi
-
Áreiðanleiki, frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
![Arion banki](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-6ac25c0a-c1cc-48db-ab3b-71685b9fd874.png?w=256&q=75&auto=format)
![Samtök atvinnulífsins](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-adc6e61a-d4ce-4f37-8f3b-1194eea36415.png?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Bónus](https://alfredprod.imgix.net/logo/b5663007-3392-46da-959e-7ae93d7a9dcd.png?w=256&q=75&auto=format)
![Húnaþing vestra](https://alfredprod.imgix.net/logo/499771a1-2c84-40e0-bfa9-1b3c93f8b081.png?w=256&q=75&auto=format)
![Coca-Cola á Íslandi](https://alfredprod.imgix.net/logo/637d8147-d9e5-44a6-afb9-7f55ad12fa1a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![CCP Games](https://alfredprod.imgix.net/logo/7bdfde97-fd7b-4e75-8176-346231890ef4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Maurar - Hönnunarstúdíó](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-07f8dc86-682e-4e3b-b9a0-b410c32b9a00.png?w=256&q=75&auto=format)
![viking kitchen ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-af142f53-e955-451b-b72f-6f69c6ba6328.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Lucinity](https://alfredprod.imgix.net/logo/b0fe3967-8fea-4eab-b720-c1e13b4b5c1c.png?w=256&q=75&auto=format)