
Forest Lagoon Hotel and Geothermal Spa
Forest Lagoon Hotel & Geothermal Spa er starfstaður í ferðaþjónustu í Vaðlaskógi við Eyjafjörð, skammt frá Akureyri. Þar sameinast hótelstarfsemi, baðlón og veitingaþjónusta í skógi vöxnu umhverfi með útsýni yfir fjörðinn. Fyrirhugað hótel verður með 120 herbergjum og svítum, veitingastað og heilsulind.
Starfsemin felur í sér fjölbreytt verkefni við móttöku og þjónustu gesta, bókanir, þrif, veitingar, umsjón baðsvæðis og viðhald. Störfin krefjast góðrar samvinnu, þjónustulundar og vandvirkni, með áherslu á öryggi, hreinlæti og ánægjulega upplifun gesta.

Markaðs- og sölustjóri
Vilt þú móta næsta kafla Skógarbaðanna?
Skógarböðin eru einstakt verkefni í þróun þar sem baðlón og hótel skapa saman heildarupplifun. Framundan eru fjölmörg tækifæri til uppbyggingar og vaxtar, og við leitum að kraftmiklum markaðs- og sölustjóra sem vill grípa þau með okkur.
Þú leiðir markaðs- og söluteymið og vinnur náið með öðrum stjórnendum að því að laða að gesti, efla vörumerkið og auka sölu.
Í boði er fjölbreytt og spennandi stjórnunarstarf með ábyrgð og svigrúm til að láta góðar hugmyndir verða að veruleika og hafa raunveruleg áhrif á framtíð Skógarbaðanna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og efla markaðs- og söluteymið
- Móta og framkvæma markaðs- og sölustefnu fyrir baðlónið og hótelið
- Leiða tilboðsgerð, vöruþróun og sókn á nýja markaði
- Stýra herferðum, efnisgerð og stafrænni markaðssetningu
- Byggja upp tengsl við ferðaskipuleggjendur, fyrirtæki og samstarfsaðila
- Halda utan um áætlanir og fjárhagsramma og nýta gögn til að mæla árangur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af markaðs- og sölustarfi
- Leiðtogahæfni og reynsla af því að stýra teymi
- Góður skilningur á stafrænni markaðssetningu og söluleiðum
- Sterkt viðskiptavit, frumkvæði og skipulagshæfni
- Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni og gott vald á íslensku og ensku
- Reynsla úr ferðaþjónustu, hótelrekstri eða afþreyingu er kostur
Auglýsing birt11. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarböð, 605 Akureyri (Dreifbýli)
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFrumkvæðiMannleg samskiptiÖkuréttindiReyklausSamningagerðSkipulagSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



