
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Sérfræðingur í markaðssetningu – tímabundið starf
Við leitum að skapandi og drífandi sérfræðingi í markaðssetningu til að ganga til liðs við öflugt markaðsteymi VÍS í afleysingu vegna fæðingarorlofs. Starfið hentar vel einstaklingi sem vill stíga sín fyrstu skref í starfi í markaðsdeild, öðlast dýrmæta reynslu og fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og sýnilegum verkefnum fyrir eitt þekktasta vörumerki landsins.
Megináhersla starfsins er á efnissköpun samfélagsmiðla, en þú tekur jafnframt þátt í fjölbreyttum verkefnum markaðsdeildarinnar.
Ráðningartímabilið er frá 1. janúar 2027 til 15. nóvember 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hugmyndavinna, skipulag og framkvæmd efnissköpunar fyrir samfélagsmiðla og aðra stafræna miðla.
- Gerð efnis sem vekur athygli og styrkir vörumerki VÍS.
- Aðstoða við gerð og utanumhald efnisáætlana og birtinga.
- Samskipti og samstarf við ytri aðila, svo sem framleiðendur, áhrifavalda, hönnuði og birtingastofu.
- Fylgjast með og taka þátt í greiningu á árangri efnis og markaðsaðgerða.
- Þátttaka í öðrum verkefnum markaðsdeildarinnar, til dæmis herferðum, viðburðum og innri markaðssetningu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði markaðsmála, viðskipta, miðlunar eða sambærilegra greina.
- Reynsla eða mikill áhugi á markaðsmálum, samfélagsmiðlum og efnissköpun.
- Góð tilfinning fyrir því hvað virkar á stafrænum miðlum og áhugi á þróun þeirra.
- Hæfni til að skrifa skýran, lifandi og vandaðan texta á íslensku.
- Frumkvæði, sköpunarkraftur og vilji til að læra.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með ólíkum einstaklingum.
Það er kostur ef þú getur sýnt okkur dæmi um efni sem þú hefur skapað, hvort sem það er í starfi, námi eða eigin verkefnum.
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að öðlast sterka og hagnýta reynslu af starfi í markaðsdeild.
- Fjölbreytt verkefni og svigrúm til að koma hugmyndum í framkvæmd.
- Stuðning og samstarf í skapandi og metnaðarfullu markaðsteymi.
- Framúrskarandi vinnustaðamenningu og öflugt starfsmannafélag.
- Aðgangur að góðu mötuneyti
- Aðgang að orlofshúsum, golfklúbbi, rafmagnsbílastæðum, hjólageymslu og sturtu- og búningsaðstöðu.
- Samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
- Tækifæri til að vaxa og dafna – í lífi og starfi.
Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur22. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMarkaðsgreiningMarkaðsmálMarkaðssetning á netinuSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTextagerð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

