Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Mannauðsráðgjafi

Reykjanesbær óskar eftir að ráða mannauðsráðgjafa

Meginhlutverk mannauðsdeildar Reykjanesbæjar er að veita stjórnendum og starfsfólki þjónustu og ráðgjöf ásamt stefnumótun og stöðlun verklags mannauðsmála með það að markmiði að laða að og halda í hæft og gott starfsfólk sem vinnur að því að auka lífsgæði íbúa. Reykjanesbær einsetur sér að vera góður vinnustaður með hæfa stjórnendur og gott vinnuumhverfi.

Starfssvið mannauðsráðgjafa:

Mannauðsdeildin vinnur sameiginlega að verkefnum mannauðsmála hjá sveitarfélaginu en skiptir einnig með sér verkefnum og ábyrgð. Þannig ræðst verkefnaskipan m.a. af mismunandi reynslu, menntun og hæfileikum starfsmanna. Meðal verkefna mannauðsdeildar má nefna; stefnumótun mannauðsmála, ráðgjöf til stjórnenda um ýmis mannauðsmál, umsjón með ráðningaferli, öryggis- og vinnuverndarmál, stöðlun verklags, úrlausn ýmissa starfsmannamála, viðbragðsáætlanir, mælingar, greiningar og tölfræði mannauðs, miðlun upplýsinga, jafnréttisstarf, fræðslustarf, stjórnendaþjálfun o.fl.

Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi reynslu, þekkingu og áhuga á nokkrum ofangreindra verkefna.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla á opinberri stjórnsýslu
  • Haldgóð þekking á samfélaginu og starfsemi Reykjanesbæjar
  • Reynsla af mannauðs- eða verkefnastjórnun æskileg
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku og hæfni til að setja fram gögn á skýran hátt
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sveigjanleiki
  • Framúrskarandi samskiptafærni og geta til að hafa jákvæð áhrif á folk
  • Vilji til að gera gildi Reykjanesbæjar að sínum í leik og starfi

Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu. Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2021

Umsóknum er skilað rafrænt á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is undir Laus störf. Umsókn fylgi starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hvernig umsækjandi mætir hæfniskröfum starfsins. Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Óskarsson, mannauðsstjóri Reykjanesbæjar, [email protected] Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eða uppruna, eru hvattir til að sækja um.

Framtíðarsýn Reykjanesbæjar; Fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, virðingu og eldmóði.

Auglýsing birt6. júlí 2021
Umsóknarfrestur22. júlí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar