
Málastjóri í barnaverndarþjónustu með áherslu á fylgdarlaus börn og ungmenni
Suðurnesjabær leitar að málastjóra í fullt starf í barnaverndarþjónustu. Starfið felur í sér vinnslu barnaverndarmála og stuðning við börn og fjölskyldur í samræmi við barnaverndarlög nr. 80/2002, með sérstaka áherslu á fylgdarlaus börn og ungmenni. Við leitum að einstaklingi sem vill vinna náið með börnum og ungmennum, gæta hagsmuna þeirra og stuðla að öryggi, stöðugleika og velferð þeirra.
Helstu verkefni
- Móttaka og mat barnaverndartilkynninga, könnun og meðferð barnaverndarmála.
- Málavinnsla, viðtöl, ráðgjöf og stuðningur við fylgdarlaus börn og ungmenni.
- Mat á aðstæðum og stuðningsþörfum barna, gerð meðferðaráætlana og eftirfylgd með áherslu á þátttöku barna.
- Málstjórn, samþætting og eftirfylgd þjónustu.
- Undirbúningur og eftirfylgd fósturs og annarra vistunarúrræða ásamt eftirliti með aðbúnaði og þjónustu við börn og ungmenni.
- Samstarf við Útlendingastofnun og umsjón með gögnum vegna dvalarleyfismála fylgdarlausra barna.
- Þátttaka í teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi innan sveitarfélagsins og við aðra samstarfsaðila.
- Undirbúningur og framkvæmd fylgdar barna og ungmenna til heimaríkis.
- Skráning, skýrslugerð og gerð greinargerða vegna barnaverndarmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf í félagsráðgjöf eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking á barnavernd, málsmeðferð og stjórnsýslu er kostur.
- Reynsla af starfi með börnum og fjölskyldum er kostur.
- Þekking, reynsla og áhugi af vinnu með fylgdarlausum börnum, fólki á flótta eða fjölmenningarlegu starfi.
- Menningarnæmi og hæfni til að vinna með börnum og fjölskyldum með fjölbreyttan bakgrunn.
- Mjög góð samskipta- og skipulagsfærni.
- Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Færni í skýrslu- og greinargerðarskrifum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli. Kunnátta í öðru tungumálum er kostur.
Starfið felur í sér vettvangsvinnu. Umsækjandi þarf að hafa gild ökuréttindi og bíl til umráða.
Umsóknir og nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2026.
Sótt er um á vef Suðurnesjabæjar, www.sudurnesjabaer.is. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, staðfesting á menntun og starfsréttindum eftir því sem við á, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu og hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, á netfanginu [email protected] eða Hilmar Jón Stefánsson, teymisstjóri barnaverndarþjónustu, á netfanginu [email protected]. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 425-3000.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska
Enska

