
Héðinn
Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim.
Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni.
Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði.
Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi.
Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða. Að auki hefur nýverið tekið í notkun stórglæsilegt afþreyingarrými fyrir starfsmenn með golf- og skothermi, píluspjöldum og fleiru sem starfsmenn geta nýtt sér utan vinnutíma.

Málmiðnaðarmaður - Grundartanga
Héðinn hf er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni og með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Héðinn hf óskar eftir að ráða reynda málmiðnaðarmenn til starfa við fjölbreytt verkefni við starfsstöð sína á Grundartanga. Þjónustuverkstæði Héðins á Grundartanga annast daglegt viðhald og þjónustu við stóriðju á Grundartangasvæðinu.
Í boði er akstur til og frá Akranesi ásamt heitum mat á hádegi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og þjónusta á vélbúnaði
- Nýsmíði úr stáli
- Uppsetningar á búnaði
- Samsetningar á vélbúnaði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun og/eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp
- Metnaður fyrir faglegum vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt8. júlí 2024
Umsóknarfrestur21. júlí 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangi álver 133197, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
StálsmíðiVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Plastsuðumaður/Plastic Welder/Spawacz tworzyw sztucznych/Zavarivač plastike
VikNordik ehf.

Rafvirki
Blikkás ehf

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Vélvirki
Nói Síríus

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri
Vegagerðin

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates