Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Lyfjafræðingur - Apótekarinn

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum lyfjafræðingum til starfa í apótekum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og líflegt starf þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu við viðskiptavini.

Starfssvið:

Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu.

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í lyfjafræði
  • Gilt starfsleyfi
  • Brennandi áhugi á þjónustu
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hóp

Hvað býður Apótekarinn?

  • Frábær samvinna innan keðju apóteka
  • Samkeppnishæf laun
  • Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Augastað Gleraugnaverslana
  • Öflugt starfsmannafélag
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Skóstyrkur


Nánari upplýsingar um starfið veita

Fríður Skeggjadóttir, mannauðs- og gæðastjóri [email protected] og
Eygló Kristinsdóttir, verkefnastjóri á mannauðssviði [email protected]

Um Apótekarann:

Apótekarinn rekur í dag 23 lyfjaverslanir og 5 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, Lyfjaskömmtun Apótekarans og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.

Auglýsing birt2. nóvember 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar