

Lyfjafræðingur á höfuðborgarsvæðinu
Lyfjaval leitar að metnaðarfullum lyfjafræðingi í fullt starf
Fjölbreytt vakta fyrirkomulag í boði
Lyfjaval er hluti af nýstofnuðu félagi Dranga, sem er móðurfélag Orkunnar og Löðurs, Samkaupa ásamt Lyfjavali. Umrædd félög eru með djúpar rætur í þjónustu til viðskiptavina í dagvöru, heilsu, orku og þvotti fyrir bílinn um allt land. Lyfjaval rekur 7 apótek og þar af 5 bílalúguapótek þar sem áherslan er að veita framúrskarandi þjónustu.
Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf og aðrar heilsutengdar vörur, þar sem traust, fagmennska og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánanir upplýsingar veitir María Björk rekstrarstjóri [email protected].
- Fagleg ráðgjöf til viðskiptavina
- Afgreiðsla lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu
- Samskipti við lækna og heilbrigðisstofnanir
- Þátttaka í innra gæðaeftirliti og umbótarverkefnum
- Háskólapróf í lyfjafræði
- Gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna í hóp
- Frumkvæði, áreiðanleiki og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi á að taka þátt í að efla starfsemi Lyfjavals
- Afsláttarkjör hjá Lyfjaval og tengdum félögum Dranga sem eru Nettó, Orkan, Löður, Kjörbúðin og Krambúðin
Enska
Íslenska

