![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/logo/e8582153-74fc-4f0b-851d-3a440b4a398a.png?w=256&q=75&auto=format)
Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land.
Hjá Lyfju starfa í kringum 350 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár.
Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur.
Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.
![Lyfja](https://alfredprod.imgix.net/cover/934a3df7-8000-48fb-95a8-4a05542f1523.png?w=1200&q=75&auto=format)
Lyfja Spöng - Sala og þjónusta, framtíðarstarf
Viltu taka vaktina í Lyfju Spöng?
Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í framtíðarstarf í Lyfju Spöng. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík Þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Verslunin er opin frá 10-18:30 virka daga og þarf viðkomandi að geta unnið fjóra daga í viku til klukkan 18.
Íslensku kunnátta er skilyrði og viðkomandi þarf að vera að minnsta kosti 20 ára.
Nánari upplýsingar veitir Kristjana Ósk Samúelsdóttir, lyfsali Lyfju Spöng í s: 577 3500 | kristjana@lyfja.is
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Auglýsing stofnuð24. júní 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
Staðsetning
Spöngin 11, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
![BlackBox Pizzeria](https://alfredprod.imgix.net/logo/f549d1e1-b17e-4ea8-8288-c438db1dcef7.png?w=256&q=75&auto=format)
Starfsfólk í afgreiðslu og pizza gerð
BlackBox Pizzeria
![KiDS Coolshop](https://alfredprod.imgix.net/logo/fb6a8055-9c39-44f4-94f0-ca78f6c86bfa.png?w=256&q=75&auto=format)
Afgreiðslustarf Skeifunni 7
KiDS Coolshop
![SSP Iceland](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-4a73ee6f-93da-486b-9543-e1ecc9e88754.png?w=256&q=75&auto=format)
We are looking for service and kitchen staff at KEF airport
SSP Iceland
![Orkuverslun](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3b6d22d0-bf82-45e9-a61a-56605b625d28.png?w=256&q=75&auto=format)
Orkan Vesturlandsvegi - skemmtilegt hlutastarf
Orkuverslun
![Byko](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b284fdfd-9d7b-462d-bb53-4c414046ea8d.png?w=256&q=75&auto=format)
BYKO Akureyri: Starfsmaður í timburskýli
Byko
![Byko](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b284fdfd-9d7b-462d-bb53-4c414046ea8d.png?w=256&q=75&auto=format)
BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í timbri og lögnum
Byko
![Ný ísbúð](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-1e319054-8bd1-468d-a362-134dd97fa402.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
Verslunarstjóri óskast
Ný ísbúð
![Útilíf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-bec6e45a-f3a5-4cc8-aa85-d76529c574ea.png?w=256&q=75&auto=format)
Útilíf Kringlunni og Smáralind - Fullt starf
Útilíf
![Slippfélagið ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/893b7a5f-7bca-44df-864f-236f2879354d.png?w=256&q=75&auto=format)
Sölufulltrúi á Akureyri
Slippfélagið ehf
![Innnes ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/611ac875-852c-4d0f-a08f-87df091c07d6.png?w=256&q=75&auto=format)
Dagvakt í vöruhúsi
Innnes ehf.
![Lyf og heilsa](https://alfredprod.imgix.net/logo/a223321f-12b5-4cdf-80d3-5b92163e3e6d.png?w=256&q=75&auto=format)
SA Lyfjaskömmtun - framtíðarstarf
Lyf og heilsa
![Lyf og heilsa](https://alfredprod.imgix.net/logo/a223321f-12b5-4cdf-80d3-5b92163e3e6d.png?w=256&q=75&auto=format)
Þjónusta í apóteki - Kringlan
Lyf og heilsa