Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Lágmúla - Lyfjatæknir, framtíðarstarf

Við leitum að Lyfjatækni í Lyfju Lágmúla.

Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum lyfjatækni með ríka þjónustulund. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.

Helstu verkefni:

  • Móttaka lyfseðla
  • Lyfjatiltekt
  • Samlestur lyfseðla og afgreiðsla lyfja
  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og notkun þeirra
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
  • Frágangur lyfja

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af störfum í apóteki er nauðsynleg
  • Lyfjatæknir með gilt starfsleyfi er kostur
  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Geta til að starfa undir álagi
  • Góð almenn tölvukunnátta

Opnunartími Lyfju Lágmúla er 8-24 alla daga vikunnar og unnið er á vaktarúllum.

Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elínborg Krtistjánsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla | elinborg@lyfja.is

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing stofnuð5. júní 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar