Dagvakt í vöruhúsi
Innnes ehf. leitar að öflugu starfsfólki í fullt starf á dagvakt í glæsilegu vöruhúsi fyrirtækisins að Korngörðum 3 í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tínsla pantana
- Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsi
Hæfniskröfur
- Góð íslensku- eða enskukunnátta
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Stundvísi, frumkvæði, dugnaður og nákvæmni
- Reyklaus (Innnes er reyklaus vinnustaður)
Vinnutími er 7:00-15:30 mánudaga-fimmtudaga og 7:00-14:15 föstudaga.
Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv. Stefna Innnes er að vera fjölskylduvænn vinnustaður og boðið er upp á ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, framúrskarandi mötuneyti, öflugt félagslíf og fleira. Heimasíða Innnes er https://innnes.is/
Eingöngu er tekið við umsóknum á heimasíðu Innnes. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá (CV) á Word eða Pdf formi.
Umsóknarfrestur er til 03. júlí 2024.