Akureyri
Akureyri
Akureyri

Lundarskóli á Akureyri: Sérkennari

Við Lundarskóla á Akureyri er laus til umsóknar 100% staða sérkennara á eldra stigi. Um er að ræða ótímabundna ráðningu frá og með 1. ágúst 2026.

Leitað er að einstaklingi með metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Lundarskóli er staðsettur við Dalsbraut og er fjöldi nemenda um 485 og 95 starfsmenn. Í skólanum er unnið með SMT skólafærni og heilsueflandi skóla. Lundarskóli leggur áherslu á teymisvinnu og framþróun í skólastarfi.

Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing, vellíðan.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.lundarskoli.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er hluti af stoðteymi skólans ásamt sérkennurum, þroskaþjálfa, námsráðgjafa og ÍSAT kennara
  • Sinnir sérkennslu og heldur utan um nám nemenda sem þurfa sértæka aðstoð í námi í samvinnu við umsjónarkennara og tekur þátt í lausnaleit og vinnu hvað varðar þátttöku þeirra í daglegu skólastarfi
  • Aðstoðar umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa
  • Veitir kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn
  • Útbýr kennslugögn í samræmi við þarfir einstakra nemanda.
  • Sækir teymisfundi vegna nemenda og er teymisstjóri í nemendamálum skv. samkomulagi við deildarstjóra stoðþjónustu
  • Tekur þátt í þróunarstarfi stoðþjónustu skólans
  • Starfar undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra skólans
  • Ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra
  • Sérkennari fylgir stefnu skólans í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsnám á svið sérkennslu er æskilegt
  • Reynsla af kennslu og/eða sambærilegu starfi með börnum og unglingum æskileg
  • Réttindanám í LOGOS er æskilegt
  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda
  • Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
  • Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði
  • Áhugi á kennslu og vinnu með börnum og unglingum
  • Áhugi og metnaður til að vinna með stoðþjónustuteymi skólans og fylgja stefnu og sýn skólans
  • Frumkvæði og samstarfsvilji
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur6. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsbraut/Lundarskóli 147482, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar