Fjársýslan
Fjársýslan

Löggiltur endurskoðandi

Fjársýslan leggur áherslu á að skapa virði fyrir viðskiptavini og til að mæta auknum kröfum auglýsir Fjársýslan eftir löggiltum endurskoðanda með mikla þekkingu og reynslu af samstæðuuppgjörum til starfa.

Um framtíðarstarf er að ræða í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi og felur starfið í sér mánaðar- og ársfjórðungsuppgjör ríkissjóðs og ársuppgjör ríkisaðila í A1-hluta, ráðgjöf til ríkisaðila sem snýr að áætlanagerð, bókhaldi og reikningsskilum auk annarra umbóta- og þróunarverkefna fjármálasviðs. Starfið er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill takast á við faglegar áskoranir og taka þátt í að þróa reikningsskil ríkisins til framtíðar.

Fjársýsla ríkisins er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála og veitir stofnunin ríkisaðilum fjölbreytta, þjónustu og ráðgjöf í umfangsmiklu reikningsskilaumhverfi ríkisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mánaðar- og ársfjórðungsuppgjör ríkissjóðs og ársuppgjör ríkisaðila í A1-hluta.
  • Samræming reikningsskila og bókhalds ríkisaðila.
  • Ráðgjöf til ríkisaðila varðandi áætlanagerð.
  • Ráðgjöf til ríkisaðila varðandi bókhald, reikningsskil samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðum fyrir opinbera aðila (IPSAS) og ráðgjöf við framkvæmd afstemminga.
  • Vinna við gerð ríkisreiknings í samræmi við IPSAS.
  • Umbóta- og þróunarverkefni.
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í endurskoðun og reikningsskilum sem viðurkennd er af endurskoðendaráði samkvæmt lögum um endurskoðendur og endurskoðun nr. 94/2019.
  • Hefur staðist próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa samkvæmt reglugerð 595/2020.
  • Farsæl reynsla af samstæðuuppgjörum og uppgjörum stórra fyrirtækja.
  • Þekking á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS/IPSAS).
  • Góð greiningarhæfni.
  • Góð þekking á Excel og upplýsingatækni.
  • Reynsla af nýtingu gervigreindar er kostur.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku.
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
  • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar