

Ert þú upprennandi endurskoðandi?
Viltu byggja upp sterkan grunn í endurskoðun, gagnagreiningu og reikningsskilum hjá alþjóðlegu fyrirtæki sem leggur áherslu á faglega starfsþróun?
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum til að bætast við endurskoðunarteymi PwC í Reykjavík frá hausti 2026. Starfið hentar vel þeim sem eru að ljúka háskólanámi og eru á leið í meistaranám, eru nú þegar skráð í meistaranám í endurskoðun og reikningsskilum eða hafa lokið gráðunni. Hjá PwC færðu tækifæri til að hefja starfsferil þar sem þú lærir með því að framkvæma, færð góða leiðsögn og vinnur með fjölbreyttum viðskiptavinum.
Sem nýliði hjá PwC:
-
tekur þú þátt í endurskoðun og gerð reikningsskila hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum, stofnunum og öðrum lögaðilum
-
greinir þú gögn, færslur og lykiltölur til að tryggja að fjárhagslegar upplýsingar séu rétt settar fram
-
lærir þú að vinna með flókin viðfangsefni og draga ályktanir
-
vinnur þú í teymum, verð tíma á skrifstofu viðskiptavina og byggir upp sterkt tengslanet
-
færð þú innsýn í ólíkar atvinnugreinar og rekstrarumhverfi
Starfið er fjölbreytt, krefjandi og lærdómsríkt. Við bjóðum upp á stuðning til að læra og þroskast í starfi þar sem þú vinnur með færum sérfræðingum á sviði endurskoðunar.
Af hverju PwC?
Við viljum að þú vaxir í starfi og bjóðum því upp á:
-
sterkt lærdómsumhverfi með mikla áherslu á þjálfun og kennslu
-
mentor fyrir alla nýliða sem veitir þér sérstaka handleiðslu fyrstu mánuðina í starfi
-
regluleg snerpusamtöl með yfirmanni
-
árleg frammistöðusamtöl og markmiðasetning
-
tækifæri til sérhæfingar í t.d. gagnagreiningu, innri stjórntækjum eða endurskoðun
-
aðgang að alþjóðlegu fagneti PwC og fjölbreyttum námskeiðum
-
vinnuumhverfi sem leggur áherslu á teymisvinnu, vellíðan og sveigjanleika
Við trúum því að besti árangurinn náist í öflugum hópi þar sem fólk getur bæði haft áhrif og þroskast faglega.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
hefur lokið BS-prófi í viðskiptafræði, hagfræði eða skyldum greinum (eða er að ljúka námi á árinu)
-
nám eða stefna í meistaranám í endurskoðun og reikningsskilum
-
hefur áhuga á endurskoðun og reikningsskilum
-
er skipulagður, lausnamiðaður og hefur góða samskiptahæfni
-
getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi
-
er forvitinn, með sterka aðlögunarhæfni og hefur metnað til að læra og þróast í starfi
Kostur en ekki skilyrði:
-
reynsla úr bókhaldi eða skrifstofustörfum
-
námskeið í gagnagreiningu, tölvunarfræði eða forritun
Enska
Íslenska










