
Árnason Faktor
Árnason Faktor sérhæfir sig í ráðgjöf og við vernd hugverka með sérstaka áherslu á þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Starfsfólk okkar hefur áratuga reynslu á sviði hugverkaréttar og leggjum við mikla áherslu á þjálfun og þekkingaruppbyggingu starfsmanna fyrir viðskiptavini okkar. Starfsmenn okkar hafa menntun og reynslu á sviði laga-, tækni-, raun- og hugvísinda.
Lögfræðingur
Árnason Faktor óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa. Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í sterku teymi starfsmanna fyrirtækisins.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn ráðgjöf á sviði hugverkaréttar og þá sérstaklega á sviði vörumerkja, hönnunar, léna og einkaleyfa.
- Almenn ráðgjöf hvað varðar önnur auðkenni og hugverk í atvinnustarfsemi.
- Almennt utanumhald og rekstur mála fyrir framangreind réttindi.
- Skrif greinargerða og rökstuðnings, samskipti við innlenda og erlenda viðskiptavini og stofnanir.
- Samningagerð og önnur lögfræðileg vinna sem tengist hugverkum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í lögfræði, cand.jur. eða meistaragráða (5 ára nám í lögfræði áskilið).
- Lögmannsréttindi er kostur.
- A.m.k. 5 ára starfsreynsla.
- Áhugi og þekking á hugverkarétti æskileg og þá sérstaklega hugverkarétti á sviði iðnaðar.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Framúrskarandi samskiptafærni og geta til að starfa í teymi.
- Skipulagshæfileikar, samviskusemi, sjálfstæði og áreiðanleiki.
Auglýsing birt2. júlí 2026
Umsóknarfrestur9. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Guðríðarstígur 2-4 4R, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

