

Lögfræðingur
Vilt þú taka þátt í að móta trausta og skilvirka umgjörð um fjármálaþjónustu á Íslandi?
SFF óska eftir að ráða öflugan lögfræðing til starfa. Um er að ræða fjölbreytt starf í metnaðarfullu starfsumhverfi. Hjá SFF starfar öflugur og samhentur hópur sérfræðinga sem vinnur þétt saman. Starfið heyrir undir yfirlögfræðing samtakanna.
SFF eru heildarsamtök íslenskra fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga. Innan okkar raða eru 25 aðildarfélög sem standa á bak við nær alla fjármálaþjónustu hér á landi og hjá starfa um 3.300 manns. Við leggjum áherslu á gott samtal og góða samvinnu við stjórnvöld, eftirlitsstofnanir, atvinnulíf og ekki síst fólkið í landinu. Markmið okkar er stuðla að samkeppnishæfum starfsskilyrðum með áherslu á heilbrigt, traust og þjónandi fjármálakerfi.
- Fylgjast með og greina löggjöf og nýjungar á fjármálamarkaði
- Ritun umsagna um þingmál og stjórnvaldsfyrirmæli
- Þátttaka í málefnastarfi og hagsmunagæsla
- Samskipti við haghafa
- Önnur tilfallandi verkefni
- Embættispróf í lögfræði eða grunn- og meistaranám. Framhaldsnám er kostur.
- Þekking og reynsla af löggjöf á fjármálamarkaði og/eða vátryggingamarkaði.
- Þekking á löggjöf á sviði samkeppnisréttar, persónuverndar og/eða stjórnsýslurétti er kostur.
- Að lágmarki 5 ára starfsreynsla sem nýtist hjá SFF. Starfsreynsla hjá eftirlitsskyldum aðila eða eftirlitsaðila kostur.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, greiningarhæfni, geta til að vinna undir álagi, metnaður, öguð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði.

