Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Ljósmóðir - tímabundin staða

Tímabundin staða ljósmóður við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi er laus til umsóknar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ljósmæðravakt HSU er D1 fæðingarstaður með um það bil 80 fæðingar á ári.

Unnið er á dagvöktum alla daga vikunnar, ein ljósmóðir á kvöldvakt á mánudögum til fimmtudags en bakvaktir eru á öðrum tímum sólarhringsins. Alltaf er ljósmóðir á bakvakt fyrir bráðaútköll og önnur á fæðingarvakt.

Á Ljósmæðravaktinni er öll mæðravernd kvenna búsettra á Selfossi og nágrenni.

Einnig er mæðravernd á vegum deildarinnar í Uppsveitum, Hveragerði, Þorlákshöfn, Rangárþingi og Vík.

Ljósmæður deildarinnar sjá einnig um göngudeildarþjónustu fyrir þungaðar konur og áfram fyrstu tvær vikur eftir fæðingu. Samvinna er við áhættumæðravernd LSH.

Símaþjónusta er á deildinni á daginn og bráðasímtölum er svarað allan sólarhringinn af ljósmóður á bakvakt.

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa lokið ljósmæðramenntun.

Starfsleyfi Landlæknis.

Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð og fumkvæði í starfi.

Framúrskarandi samskiptahæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.

Góð íslenskukunnátta.

Auglýsing birt28. október 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar