

Hjúkrunardeildarstjóri sjúkradeildar í Vestmannaeyjum
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra á sjúkradeild í Vestmannaeyjum.
HSU leitar að metnaðarfullum og öflugum hjúkrunarfræðingi til að leiða fjölbreytt og krefjandi starf hjúkrunardeildarstjóra á sjúkradeild í Vestmannaeyjum. Sjúkradeildin er blönduð 18 rúma deild sem sinnir hjúkrun flestra sjúklingahópa, þar af eru átta hjúkrunarrými og eitt hvíldarrými. Einnig er rekin dagdeild lyfjagjafa innan deildarinnar. Á deildinni starfar samhent teymi hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annars starfsfólks.
Hjúkrunardeildarstjóri ber faglega, mannauðs- og rekstrarlega ábyrgð á deildinni og heyrir undir framkvæmdastjóra hjúkrunar. Hjúkrunardeildarstjóri er hluti af stjórendateymi HSU og gegnir mikluvægu hlutverki í að efla samstarf og samræmingu þvert á stofnun. Lögð er áhersla á virka samvinnu við stjórnendur og starfsfólk innan HSU til að stuðla að samfelldri og öflugri þjónustu um allt þjónustusvæði HSU.
Fagleg forysta um hjúkrun og þjónusta við skjólstæðinga deildarinnar
Yfirsýn og mótun skipulags sjúkradeildarinnar
Hjúkrunardeildarstjóri gerir áætlanir um starfsemi á deildinni ásamt öðrum stjórnendum
Skipuleggur starf hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra starfsmanna sem undir hann heyra
Hann tekur þátt í kennslu og þjálfun nemenda og starfsmanna stofnunarinnar og vinnur að framþróun gæðamála, rannsókna og fræðistarfa
Þátttaka í klínísku starfi
Þverfagleg teymisvinna innan stofnunarinnar
Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum auk leiðtogahæfileika
Brennandi áhugi á þróun þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar
Farsæl stjórnunarreynsla æskileg
Umsækjendur skulu hafa lokið hjúkrunarmenntun frá viðurkenndri menntastofnun og hafa starfsleyfi Landlæknisembættisins
Framhaldsnám í hjúkrun og/eða stjórnun æskileg
Hæfni í tjáningu bæði í ræðu og riti
Frumkvæði, áreiðanleiki, drifkraftur, þrautsegja og árangursmiðað viðhorf nauðsynleg
Íslenska