Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Ljósmóðir - Heilsugæslan Efstaleiti

Heilsugæslan Efstaleiti leitar eftir að ráða áhugasama og drífandi ljósmóður í 50-80% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Ljósmóðir mun starfa í þverfaglegu teymi með annarri ljósmóður, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Heilsugæslan Efstaleiti er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef www.island.is/s/hh/um-hh

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið ljósmæðra er við meðgönguvernd, ungbarnavernd og leghálsskimanir 

Meðgönguvernd 
Markmið meðgönguvernd er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. Meðgönguvernd er höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. 

Ung- og smábarnavernd 
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs. 

Leghálsskimanir 
Heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi og annast ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sýnatökur vegna skimunarinnar. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsleyfi sem ljósmóðir
  • Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
  • Reynsla af leghálsskimunum kostur
  • Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
  • Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt13. maí 2026
Umsóknarfrestur22. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 3, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar