

Lifandi starf í skemmtilegu umhverfi
Vatn & veitur leitar að metnaðarfullum og duglegum einstaklingi til framtíðarstarfa í höfuðstöðvar fyrirtækisins í Kópavogi. Þar erum við með verslun fyrir fagfólk auk vöruhúss en við leitum að viðbót í okkar frábæra teymi i vöruhúsið.
Vatn & veitur sérhæfir sig í sölu og þjónustu til fagmanna á pípulagninga- og veitumarkaði og er sjálfstæð rekstrareining innan Fagkaupa en hjá Fagkaupum starfa yfir 200 starfsmenn vítt og breitt um landið.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem býður upp á mikla möguleika til starfsþróunar og vaxtar í starfi. Við leggjum mikið upp úr góðu vinnuumhverfi þar sem frábær hópur starfsfólks hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu.
Vatn og veitur er stolt að því að vera með jafnlaunavottun og mikil áhersla er lögð á jákvætt vinnuumhverfi og vellíðan starfsfólks.











