

Liðsfélagi í suðu
Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við suðu í framleiðslu sem vill taka þátt í að umbreyta því hvernig matvæli eru unnin. Lögð er áhersla á öruggt vinnulag og þátttöku í umbótastarfi. Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi og fjölbreytt verkefni.
Hvetjum áhugasama og metnaðarfulla nema í stálsmíði sérstaklega til að sækja um.
Starfið felur í sér:
- Smíði úr ryðfríu stáli
- Samsetningu tækja og búnaðar eftir þörfum
- Stillingar og prófanir ásamt frágang fyrir flutning eftir þörfum
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf eða nám í málmiðngrein
- Mikill áhugi á rafsuðu (TIG)
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
- Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun
- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
- Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
- Jákvæðni, lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
- Áhugi á umbótastarfi
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2022. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 29. maí nk.











