Skólar ehf
Skólar ehf
Skólar ehf

Leikskólastjóri-Heilsuleikskólinn Kór

Öflugur faglegur leiðtogi óskast í stöðu leikskólastjóra á Heilsuleikskólann Kór í Kópavogi. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. júní næstkomandi. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir góðum samstarfshæfileikum, er lausnamiðaður og hefur skýra framtíðarsýn um að viðhalda öflugu leikskólastarfi.

Heilsuleikskólinn Kór sem staðsettur er í Baugakór 25 í Kópavogi auglýsir eftir áhugasömum og metnaðarfullum stjórnanda með leikskólakennararéttindi og stjórnunarreynslu í starf leikskólastjóra.

Heilsuleikskólinn Kór er sjálfstætt starfandi og rekinn af Skólum ehf. Skólinn er sex deilda með um 112 börn og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur sem leggur áherslu á hreyfingu, næringu og sköpun.

Einkunnarorð okkar er „heilbrigð sál í hraustum líkama“

Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2021 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða 100% starfshlutfall

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf sem kennari. (Leyfisbréf fylgi umsókn)
Framhaldsmenntun á sviði menntunarfræða er kostur
Stjórnunarreynsla og víðtæk þekking/reynsla af leikskólastarfi
Leiðtogafærni
Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Þekking á opinberri stjórnsýslu er varðar leikskólastarf
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
Góð íslensku- og enskukunnátta
Góð tölvufærni og þekking á nauðsynlegum kerfum
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags
Samkvæmt starfslýsingu leikskólastjóra ber hann ábyrgð á fag- og fjárhagslegum rekstri leikskólans gagnvart rekstraraðila
Meginhlutverk leikskólastjóra er að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri leikskólans
Ber rekstrarlega ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
Sér um ráðningar starfsmanna, gerð ráðningarsamninga, vinnuskýrslna, skipuleggur vinnutíma starfsmanna og vinnutilhögun
Veitir leikskólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
Önnur verkefni eru samkvæmt sérstakri starfslýsingu leikskólastjóra
Auglýsing birt11. febrúar 2021
Umsóknarfrestur25. febrúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Baugakór 25, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar