Núpur
Núpur
Núpur

Leikskólakennari í óskast í Núp hlutastarf

Okkur í Núpi vantar leikskólakennara í 50% starf, eftir hádegi, næsta vetur.

Leikskólinn Núpur er 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3.
Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Við leggjum áherslu á Fjölgreindir í leikskólastarfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu s.s. virðing fyrir einstaklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.

Fjölgreindir í leikskólastarfi hjálpa okkur að sjá hvernig hvert barn lærir best og hvað við getum gert til að auðvelda því að nýta allar greindir til náms. Í leikskólanum eru börn með mismunandi atgervi og frá ólíkum menningarheimum og leitast er við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.
Upplýsingar um leikskólann má finna á http://nupur.kopavogur.is/

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Þeir sem ráðnir eru til starfa á leikskólum Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.

Upplýsingar gefa Svana Kristinsdóttir, leikskólastjóri og Eva Sif Jóhannsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 441-6600.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að vinna í teymi
Skapandi hugsun og metnaður í starfi
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að menntun og uppeldi barna í fjölbreyttu og gefandi starfi
Auglýsing birt17. september 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Núpalind 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar