Núpur
Núpur
Núpur

Leikskólakennari óskast í Núp

Okkur í Núpi vantar leikskólakennara í 100% starf næsta vetur.

Leikskólinn Núpur er 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3.
Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Við leggjum áherslu á Fjölgreindir í leikskólastarfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu s.s. virðing fyrir einstaklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.

Fjölgreindir í leikskólastarfi hjálpa okkur að sjá hvernig hvert barn lærir best og hvað við getum gert til að auðvelda því að nýta allar greindir til náms. Í leikskólanum eru börn með mismunandi atgervi og frá ólíkum menningarheimum og leitast er við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.
Upplýsingar um leikskólann má finna á http://nupur.kopavogur.is/

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 9. ágúst

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Þeir sem ráðnir eru til starfa á leikskólum Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.

Upplýsingar gefa Svana Kristinsdóttir, leikskólastjóri og Eva Sif aðstoðarleikskólastjóri í síma 441-6600.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til að vinna í teymi
Skapandi hugsun og metnaður í starfi
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna að menntun og uppeldi barna í fjölbreyttu og gefandi starfi
Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra ásamt þeim verkefnum sem deildarstjóri felur starfsmanni
Auglýsing birt1. október 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Núpalind 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar