

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa
Ath. breyting hefur verið á starfi:
Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast til starfa í 86% stöðugildi frá 2. janúar – 4. júlí 2025. Möguleiki er að starfshlutfall aukist síðar.
Matráður óskast til starfa í 50% í janúar
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.
· Leyfisbréf til kennslu
· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
· Góðir skipulagshæfileikar
· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
· Góð íslenskukunnátta
· Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.
Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku (miðað við 100% vinnu) og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.
Íslenska










