Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel

Leikskólakennari / kennari

Við leitum að leikskólakennara í 90 % starf tímabundið skólaárið 2021 -2022 með möguleika á fastráðningu eftir árið.

Við leitum að kennara sem hefur áhuga á uppeldi og námi yngri barna og er tilbúinn að taka þátt í fjölbreyttu starfi í öflugum starfsmannahópi af áhuga, jákvæðni og opnum hug.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.

Unnið er samkvæmt starfslýsingu um störf leikskólakennara á síðu KÍ.

Ef ekki fæst leikskólakennari eða kennaramenntaður aðili þá verða umsóknir annarra metnar út frá hæfni og umsögn.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun
Önnur kennaramenntun / leyfisbréf á milli skólastiga
Áhugi á menntun og uppeldi ungra barna
Reynsla af kennslu og uppeldi barna ( ungra )
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Stundvísi og reglusemi
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Auglýsing birt31. maí 2021
Umsóknarfrestur20. júní 2021
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lerkigrund 9, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar