

Leikskólakennari í Jöklaborg
Leikskólakennari - Jöklaborg
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Jöklaborg sem staðsettur er í Seljahverfi Jöklaseli 4, 109 Reykjavík.
Jöklaborg er fimm deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Leiðarljós leikskólans er: Gleði – Virðing – Sköpun. Unnið er meðal annars eftir kenningum Bronfernbrenners og Berit Bae um samskipti og áhersla lögð á sjálfseflingu og félagsfærni sem eru tveir af grundvallarþáttum Menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Aðrir áherslurþættir starfsins eru meðal annars leikur, læsi, sköpun og lýðræði. Námskrá Jöklaborgar, myndband og fjölmargar aðrar upplýsingar um leikskólann má finna á netinu: www.joklaborg.is
Starfið er laust nú þegar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.











