
Leikskólinn Goðheimar
Leikskólinn Goðheimar hóf starfsemi sína í mars 2021 en þá voru opnaðar þrjár af sex deildum leikskólans. Leikskólinn er til húsa að Engjalandi 21 á Selfossi.
Í leikskólanum Goðheimum byggir leikskólastarfið á hugmyndafræði Grænfánans. Einnig er hafin innleiðing á Heilsueflandi leikskóli sem er á vegum Embættis landlæknis, því er ætlað að styðja leikskóla í að vinna markvisst að heilsueflingu og gera hana að hluta af daglegu starfi leikskólans.
https://www.youtube.com/watch?v=-uAR7RvcxxU

Leikskólakennarar á nýjar deildir
Leikskólinn Goðheimar er nýr sex deilda leikskóli á Selfossi. Opnaðar voru þrjár deildir skólans í apríl 2021 og í janúar 2022 opna tvær deildir og 6. deildin opnar í febrúar 2022.
Unnið er að innleiðingu á Heilsueflandi leikskóla og grænfána. Hér er tækifæri fyrir leikskólakennara til að taka þátt í mótun skólans og hafa fagleg áhrif á þróun hans.
Um er að ræða 12 stöður leikskólakennara í 100% starfshlutfalli. Ráðið verður í átta stöður frá og með 1. janúar 2022 og fjórar stöður frá og með 1. febrúar 2022 eða eftir nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennararéttindi
Hæfni, reynsla og áhugi í starfi með börnum
Góðir skipulagshæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
Jákvæðni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og Menntastefnu Árborgar
Vinnur að uppeldi og menntun barna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna undir stjórn deildarstjóra
Auglýsing birt5. október 2021
Umsóknarfrestur25. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri / aðstoðarleikskólastjóri
Mánaland

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.
Leikskólinn Tjörn

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólinn Krílakot: Leikskólakennarar
Dalvíkurbyggð