Leikskólinn Hlaðhamrar
Leikskólinn Hlaðhamrar
Leikskólinn Hlaðhamrar

Leikskólakennarar/leiðbeinendur óskast á Hlaðhamra

Leikskólinn Hlaðhamrar leitar að öflugum leikskólakennara eða uppeldismenntuðu fólki.

Á Hlaðhömrum eru 80 börn á aldrinum 2ja til 5 ára. Sérstakar áherslur í leikskólastarfinu eru gæði í samskiptum og skapandi starf. Er þar fyrst og fremst horft til hugmynda Loris Malaguzzi, stefna sem nefnd hefur verið Reggiostefnan. Markmiðið er að leikskólabörnin öðlist sterka sjálfsvitund, hæfni í samskiptum, skapandi færni og frjóa hugsun. Lykilorð í allri samvinnu og samstarfi Hlaðhamra er virðing.

Leikskólakennari/leiðbeinandi vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu og í samræmi við námsskrá skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur sambærileg menntun
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Frumkvæði og metnaðurí starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla í starfi með leikskólabörnum.
Auglýsing birt19. júní 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlaðhamrar 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar