
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð
Óskað er eftir einstaklingum í skemmtilegt og skapandi starf með börnum og ungmennum í félagsmiðstöðinni Óðal fyrir skólaárið 2022 - 2023.
Við bjóðum upp á uppbyggilegt félagsstarf fyrir 10 - 16 ára börn og ungmenni í frítímanum. Áhersla er lögð á lýðræðisþáttöku barna og unglinga og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Unnið er í opnu starfi, tímabundnum verkefnum, í klúbbum og sértæku hópastarfi. Starfið byggist á hugmyndafræði unglingalýðræðis.
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi að vinna með börnum og unglingum
Færni í samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í félagsmiðstöðvarstarfi.
Góð íslenskukunnátta.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðbeina börnum og ungmennum í leik og starfi.
Skipulagning og framkvæmd á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga.
Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga.
Góð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólk.
Góð samskipti og samstarf við foreldra og aðra sem koma að starfi Óðals.
Auglýsing birt30. júní 2022
Umsóknarfrestur7. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gunnlaugsgata 7, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (7)

Skóla- og frístundaliði í Skarðsel - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Fjarðabyggð

Frístund: frístundarleiðbeinandi
Dalvíkurbyggð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hellinn
Frístundamiðstöðin Miðberg

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan