Lagerstarfsmaður á bifreiðaverkstæði - Akureyri
Höldur óskar eftir að ráða lagerstarfsmann á glæsilegt bíla- og tjónaviðgerðarverkstæði á Akureyri.
Verkstæðið er viðgerða- og þjónustuaðili fyrir bílaumboðin Heklu, Öskju og BL, auk þess að annast viðgerðir á öðrum tegundum bíla. Auk almennra viðgerða sinnir verkstæðið tjónaviðgerðum. Verkstæðið er útbúið nýjasta tækjakosti og er aðbúnaður allur til fyrirmyndar.
- Afgreiðsla og sala varahluta
- Útskrift, frágangur og uppgjör reikninga
- Pantanir, móttaka og skráning varahluta
- Frágangur og uppgjör reikninga
- Góð þjónustulund, jákvæðni og samskiptafærni
- Góðir skipulagshæfileikar
- Próf í bifvélavirkjun er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Reynsla af Navision er kostur
Höldur ehf., sem fagnaði 50 ára afmæli sínu í fyrra, rekur m.a. Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins ásamt því að reka almenna bílaþjónustu á Akureyri þ.e. hjólbarðaverkstæði, bílaverkstæði og bílasölu.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.