
Slippurinn Akureyri ehf.
Slippurinn Akureyri ehf. veitir alhliða þjónustu við sjávarútveginn og teljast helstu útgerðir á Íslandi til viðskiptavina fyrirtækisins, einnig hefur Slippnum orðið ágengt á erlendum markaði upp á síðakastið. Aðrir viðskiptavinir eru stóriðjur, virkjanir og ýmsar verksmiðjur. Slippurinn Akureyri ehf. er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Það rekur upptökumannvirki og viðgerðarstöð fyrir skip og annast hvers konar málmsmíði, vélsmíði, vélaviðgerðir, rennismíði og skipasmíðar. Fyrirtækið rekur ennfremur trésmíðaverkstæði, sand/vatnsblástur, málun og verslun með eigin framleiðslu og aðrar vörur til skipa. Skipaþjónusta Slippsins Akureyri annast þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki og býður heildarlausnir í hönnun, endurnýjun og viðhaldi á skipum og búnaði þeirra. Þá færast svonefnd landverkefni stöðugt í aukana hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Slippsins Akureyri eru um 160 talsins. Í þeim hópi eru m.a. rennismiðir, stálsmiðir, trésmiðir, tækjamenn, verkamenn og vélvirkjar. Helstu þættir í skipaþjónustu Slippsins Akureyri eru slipptökur, þvottur og málun, vélaupptökur, skrúfuviðgerðir, stálviðgerðir og ryðfrí smíði auk innréttingasmíði og hvers konar viðhalds á tréskipum. Ef sérfræðingarnir finnast ekki innan okkar vébanda köllum við til einhver af okkur frábæru samstarfsfyrirtækjum, því við leggjum mikið upp úr slagorðinu gamla og góða, sem einhver smíðaði um árið: ”Allt á einum stað!” Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að leita lengra en til okkar því við bjóðum heildarlausn á þeim verkefnum sem við blasa hverju sinni.

Lagerstarfsmaður
Slippurinn Akureyri leitar að öflugum starfsmanni á lager fyrirtækisins.
Viðkomandi þarf að vera stundvís og reglusamur. Um er að ræða fullt starf, alla virka daga milli 07:30 -15:45 með tilfallandi yfirvinnu á virkum dögum og laugardögum eftir þörfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
·Almenn lagerstörf og þjónusta
·Afgreiðsla á vörum til starfsmanna- og viðskiptavina
·Móttaka á vörum
·Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
·Góð almenn samskiptahæfni
·Drífandi, jákvæð/ur og með góða þjónustulund
·Nákvæmni og vandvirkni í vinnubrögðum
·Gild ökuréttindi skilyrði
·Lyftarapróf kostur
·Reynsla af lagerstörfum kostur
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiÖkuréttindiSamviskusemiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Vöruhús / lager
Icetransport

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn

Dreifingarmiðstöð - lagerstarfsmaður
Vínbúðin

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning
Johan Rönning

Partýfulltrúi - Fullt starf - Helgarstarf
Rent-A-Party

Starfsmaður óskast á lager og í útkeyrslu hjá Inter ehf.
Inter ehf

Þjónustufulltrúi - vöruhús og verkstæði
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Bílstjóri og aðstoðarmaður í vöruhúsi – Fjölbreytt og líflegt starf
Egill Árnason ehf

Vörutiltekt í vefverslun
ELKO

Starfsmaður í tiltekt á vörum
Álfasaga ehf